flugfréttir
Flugdólgur dæmdur til að greiða 21 milljón króna sekt
- Þotunnivar snúið við eftir aðeins 45 mínútna flug aleiðis yfir Kyrrahafið
Airbus A330 breiðþota Hawaiian Airlines
Ölvaður farþegi, sem var valdur að því að Airbus A330 breiðþota frá Hawaiian Airlines þurfti að snúa við til Honolulu vegna hegðunar hans, hefur verið gert að greiða 21.6 milljón króna í sekt.
Þetta er með þeim hæstu sektum sem flugdólgur hefur fengið í hausinn vegna óláta í háloftunum en um er
að ræða 48 ára gamlan Kóreubúa sem hafði klárað heila Ballantine-vískíflösku áður en hann fór um borð í flug á flugvellinum
í Honolulu áleiðis til Seoul í Suður-Kóreu.
Samkvæmt dómsmáli þá kemur fram að farþeginn fór að hegða sér illa skömmu eftir brottför, fór að angra barn
sem sat við hlið hans auk þess sem hann veittist að áhöfninni sem gerði tilraun til þess að róa hann niður.
Málið var tekið fyrir sl. miðvikudag og var farþeginn, Kyong Chol Kim, að auki þess dæmdur í sex mánaða
fangelsi en atvikið átti sér stað í febrúar á þessu ári og þurfti flugvélin að snúa við til Honolulu þar sem lögregla
beið farþegans.
Svipað atvik átti sér stað um borð í þotu Hawaiian Airlines árið 2016 sem kostaði félagið um 18 milljónir króna en þá þurfa að snúa Airbus A330 þotu við og sundurliðast
sá kostnaður niður í eldsneyti, kostnaður við útkall og álag á starfsmenn félagsins á flugvellinum í Honolulu og þá kostaði gisting fyrir farþegana um 5 milljónir króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.