flugfréttir
Hættir sem yfirmaður Boeing 737 MAX deildarinnar
Eric Lindblad var gerður einn af yfirmönnum yfir Boeing 737 MAX deildinni í ágúst í fyrra
Eric Lindblad, yfirmaður yfir 737 MAX deildinni hjá Boeing, mun láta af störfum sem forsvarsmaður verkefnisins og er hann annar yfirmaðurinn sem hefur yfirgefið sæti formanns 737 MAX deildarinnar á aðeins tveimur árum.
Lindblad hefur starfað í 34 ár hjá Boeing og hefur hann meðal annars leitt áfram framleiðslu á Boeing 777X þotunni auk
þess sem hann hefur komið að stjórnunarstörfum við framleiðslu á fleiri farþegaþotutegundum í gegnum árin.
Í yfirlýsingu kemur fram að fráhvarf Lindblad hafi ekkert með slæma velgengni Boeing 737 MAX að gera þar sem
Lindblad hafi í fyrra lýst yfir ósk sinni að stíga niður sem stjórnandi yfir 737 MAX verkefninu.
Mark Jenks mun taka sæti Lindblad en Jenks hefur að undanförnu starfað sem yfirmaður yfir þeirri deild sem Boeing
kom á fót sem er ætlað að þróa nýja tegund af farþegaþotu sem þekkt er undir nafninu Boeing 797 sem er ætlað að koma á markaðinn um miðjan næsta áratug.
Jenks mun starfa með Eric á næstu vikum til að tryggja að Boeing 737 MAX verkefnið gangi snuðrulaust fyrir sig er
Lindblad segir skilið við starfið en mesta áskorunin verður að halda áfram að vinna að því að koma Boeing 737 MAX
aftur í loftið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.