flugfréttir
Boeing frestar fyrsta flugi 777X fram til 2020
Boeing 777-9 tilraunarþotan í Everett
Boeing hefur tilkynnt að fyrsta flug nýju Boeing 777X þotunnar mun ekki eiga sér stað á þessu ári vegna vandamála sem hafa komið upp hjá hreyflaframleiðandanum General Electric með GE9X hreyfilinn.
Með þessu mun fyrsta flugið eiga sér stað árið 2020 en upphaflega stóð til að fyrsta tilraunarþotan myndi
fljúga fyrsta flugið í sumar en afhendingar eiga að hefjast seinnipartinn árið 2020.
General Electric lýsti því yfir á flugsýningunni í París í júní að nauðsynlegt væri að endurhanna
nokkra íhluti í háþrýstiþjöppurými í hreyflinum sem myndi fresta fyrsta fluginu fram á haust en þrátt
fyrir það þá voru yfirmenn Boeing staðráðnir í að þotan myndi fljúga á þessu ári.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.