flugfréttir

Vélmenni flaug mannlausri Cessnu í 2 klukkustundir

- Robopilot er samstarfsverkefni bandaríska flughersins og Dzyne Technologies

19. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:30

Vélmennið flaug flugvélinni í um tvær klukkustundir

Lítil Cessna-einkaflugvél tók á loft á dögunum í Bandaríkjunum mannlaus með engan um borð en flugvélinni var flogið af vélmenni sem flaug vélinni í tvær klukkustundir.

Vélmennið, sem kallast Robopilot, er samstarfsverkefni rannsóknardeildar bandaríska flughersins (AFRL) og fyrirtækisins Dzyne Technologies en vélmenninu var komið fyrir um borð í flugvél af gerðinni Cessna 206 Skywagon og fór vélin í loftið frá flugvellinum í Dugway í Utah þann 9. ágúst sl.

Robopilot-vélmennið hefur arma sem stjórna stýrinu, ýta á fótstigið til að hreyfa hliðarstýri og ýta á bremsur, stjórna eldsneytisinngjöfunni og mixtúrunni, breyta flapastillingum og lesa af mælum - allt á sömu vegi og flugmaður myndi gera.

Vélmennið flaug vélinni úr hægra sætinu

Fjöldi skynjara fylgjast með afstöðu vélarinnar og niðurstöður frá þeim gefa boð til armanna sem framkvæmda viðeigandi aðgerðir til að stýra vélinni.

„Engar varanlegar breytingar voru gerðar við flugvélina til þess að koma vélmenninu fyrir. Með þessu getur flugvél farið í ómannaða sendiför á flugvél eins og Cessna eða Piper“, segir Alok Das, vísindamaður hjá rannsóknardeild bandaríska flughersins.

AFRL og Dzyne Technologies hafa unnið að hönnun og þróun Robopilot sl. ár en prófanir voru gerðar á undan í RedBird flughermi með Flight Simulator X en sambærileg vélmenni hafa áður flogið flugvélum af gerðinni Diamond DA42, Cessna 208 Caravan auk þess sem vélmenni hefur flogið DHC-2 Beaver.

Hér að neðan má sjá myndband sem tekið var er Robopilot flaug Cessna Skywagon flugvélinni í Utah á dögunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga