flugfréttir

Biðja um aðstoð við að finna brak úr hreyfli af Airbus A220

- Bilun kom upp í hreyfli á A220 þotu á leið frá Genf til London Heathrow

21. ágúst 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:20

Airbus A220 þota frá SWISS International Air Lines

Sérfræðingar hjá rannsóknardeild flugslysa í Frakklandi (BEA) hafa biðlað til almennings í tilteknu svæði í Frakklandi um aðstoð við leit að braki sem féll úr hreyfli á Airbus A220-300 (CSeries CS300) þotu sem féll til jarðar eftir að bilun kom upp í hreyfli.

A220 þota frá flugfélaginu SWISS International Air Lines var á leið fré Genf til Heathrow-flugvallarins í London þann 25. júlí sl. og var að hækka flugið upp í 32.000 fet þegar bilun kom skyndilega upp í vinstri PW1500G hreyfli vélarinnar sem smíðaður er af Pratt & Whitney.

Áhöfn vélarinnar slökkti á hreyflinum í kjölfarið og var ákveðið að lenda á Charles de Gaulle flugvellinum í París en í ljós kom að eitt blað hafði losnað af skífu í þjöppurými hreyfilsins.

Rannsóknaraðilar hjá BEA biðja sjónarvotta, eða hvern sem kemur auga á brakið, að hafa samband við rannsóknarnefndina en talið er líklegt að það hafi fallið til jarðar nálægt skógi í nágrenni við Perrigny-sur-Armancon í um 190 kílómetra fjarlægð suðaustur af París.

Þá segir í tilkynningu að varað sé við því að hluturinn geti verið mjög oddhvass og er mælt með því að sá sem kemur auga á hann eigi frekar að taka ljósmynd af honum og senda tölvupóst til stofnunarinnar ásamt upplýsingum um staðsetningu í stað þess að taka hann upp.

Flugvélin, sem ber skráninguna HB-JCM, er eins og hálfs árs gömul en hún var afhent ný til SWISS í maí í fyrra.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga