flugfréttir
Wizz Air bætist í hóp flugfélaga á London Southend
Airbus A320 þota Wizz Air
Wizz Air mun á næstunni hefja áætlunarflug frá Southend-flugvellinum í London og bætist lágfargjaldarfélagið ungverska því í hóp fleiri flugfélaga sem hafa hafið starfsemi sína á þessum flugvelli.
EasyJet hóf starfsemi sína á London Southend árið 2012 og árið 2016 byrjaði Ryanair að fljúga um flugvöllinn og eru þessi tvö flugfélög
með mestu umsvifin á Southend-flugvellinum í dag.
Wizz Air hefur nýlega gert samning við Stobart Group, rekstaraðila flugvallarins, um að hefja flug frá London Southend í haust til Búkarest og Sibiu
í Rúmeníu auk þess sem félagið mun einnig fljúga til Vilnius í Litháen.
Með flugi Wizz Air til þessara áfangastaða þriggja verður hægt að fljúga frá London Southend til yfir 40 áfangastaða í Evrópu en
Stobart Group segir í tilkynningu sinni að stefnan sé að koma flugvellinum í hóp meðal þeirra stærstu á London-svæðinu.
Árið 2018 fóru 1,5 milljón um flugvöllinn en stefnt er á að farþegafjöldinn nái 5 milljónum árið 2023.
Önnur flugfélög sem fljúga um London Southend fyrir utan easyJet og Ryanair eru Flybe, FlyOne, Loganair, Air Malta og Volotea.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.