flugfréttir

Flugstjóri á leið í frí til Spánar tók að sér að fljúga þotu easyJet

- Tveggja tíma bið eftir að flugmaður á bakvakt myndi koma sér til Manchester

4. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 22:45

Michael Bradley í flugstjórasætinu vinstra megin

Flugstjóri einn hjá easyJet, sem var á leið í frí með fjölskyldu sína frá Manchester til Alicante sl. mánudag endaði með að fljúga vélinni sjálfur í stað þess að vera farþegi aftur í farþegarýminu þegar í ljós kom að flugstjórinn, sem átti að fljúga vélinni, var ekki mættur út á flugvöll.

Full Airbus-þota af farþegum beið eftir að komast til Alicante á Spáni en í ljós kom að töluverð seinkun blasti við þar sem annar flugmannanna var ekki mættur og átti vélin að vera farin í loftið.

Þegar Michael Bradley frétti af því að annar flugmaðurinn hafði ekki látið sjá sig ákvað hann að hringja í stjórnstöð easyJet og spurði hann hvort að hann ætti að taka að sér flugið svo allir gætu komist í sólina.

„Hæ, ég er hérna í flugstöðinni. Ég er með skírteinið á mér og skilríki og langar mest að öllu að komast í fríið sem fyrst þannig ef ég get gert ykkur greiða þá er ég hérna og tilbúin að fara“, sagði Bradley í símtalinu. Starfsmaður easyJet sagðist ætla að hringja eftir smá.

Michael Bradley ávarpar farþega í kallkerfinu fremst í flugvélinni

„38 sekúndum síðar hringdu þeir til baka og sögðu að það væri svakalegur stór greiði ef ég gæti tekið að mér að fljúga vélinni til Alicante“, segir Bradley.

Bradley ávarpaði farþega fremst í vélinni og útskýrði þeim frá stöðu mála og að hann ætlaði að taka að sér að fljúga vélinni þótt hann væri ekki í flugmannabúningnum og sagði hann: „Ef það er lagi ykkar vegna að ég er klæddur bara svona, þá erum við að fara til Alicante bara núna“, sagði Bradley.

Hann uppskar mikil fagnaðarlæti og lófaklapp frá farþegum sem voru mjög fegnir að þurfa ekki að bíða í tvær klukkustundir eftir því að komast til Spánar.

Með þessu þurftu farþegar því ekki að bíða eftir flugmann sem var á bakvakt en það hefði tekið þann flugmann um tvær klukkustundir til að koma sér frá Liverpool til Manchester.

Talsmaður easyJet segir að ástæða þess að flugmaðurinn, sem átti að fljúga vélinni komst, ekki var vegna keðjuverkandi áhrifa sem verkfall flugumferðarstjóra í Frakklandi hefur haft á starfsemi félagsins að undanförnu og hefur félagið þurft að reiða sig á fleiri flugmenn á bakvakt.

„Við erum mjög þakklát að einn af flugmönnum okkar, sem var að ferðast frá Manchester til Alicante hafi boðist til þess að fljúga flugið ásamt hinum flugmanninum. Þetta þýðir að farþegar komust á áfangastað“, segir í yfirlýsingu frá easyJet.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga