flugfréttir

WOW air á að fljúga á ný strax í næsta mánuði

- Michele Ballarin kynnir áform um endurkomu WOW air á blaðamannafundi

6. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:35

Tæpt hálft ár er liðið frá því að WOW air hvarf af flugmarkaðnum. Ballarin segir að hún finni fyrir því að fólk sakni fjólubláu flugvélanna

Til stendur að koma rekstri WOW air aftur í gang í október. Þetta er meðal þess sem kom fram á blaðamannafundi sem haldinn var á Grillinu á Hótel Sögu skömmu eftir hádegi í dag þar sem bandaríska viðskiptakonan, Michele Ballarin, kynnti áform um endurkomu WOW air.

Michele Ballarin er stjórnarformaður fyrirtækisins USAerospace Associates LLC en hún tilkynnti að búið sé að ganga frá kaupsamningi á þrotabúi WOW air auk þess sem fyrirtækið mun eignast vörumerki WOW air.

Meðal þess sem fram kom á blaðamannafundinum var áætlanir um að hið nýja félag muni bæði hafa farþegaþotur frá Airbus og Boeing í flotanum og verður farið hægt af stað með tvær þotur til að byrja með sem hefja flug milli Keflavíkurflugvallar og Washington í október og er nær dregur sumrinu 2020 er stefnt að því að fjórar þotur verði komnar í flotann.

Þá kemur fram að ekki verði stofnað nýtt flugfélag þar sem félagið mun byggja á gamla WOW air sem gerir ferlið auðveldara samanborðið við stofnun á nýju flugfélagi.

Bandaríska viðskiptakonan Michele Ballarin á blaðamannafundi klukkan 13:00 í dag á Grillinu á Hótel Sögu / Skjáskot: ruv.is

Höfuðstöðvar félagsins verða á Dulles-flugvellinum í Washington en með aðstöðu á Keflavíkurflugvelli og skrifstofur í Reykjavík. Ekki kemur fram hversu margir starfsmenn munu starfa hjá félaginu eða hversu margir af fyrrverandi starfsmönnum WOW air verða ráðnir til félagsins.

Ballarin vildi ekki greina frá kaupeverðinu í þrotabúinu en tók fram að fyrirtækið væri mjög fjársterkt með engar skuldir á bakinu og yrði félagið rekið með eigið fé frá USAerospace.

Meðal annarra aðila sem verða í stjórn félagsins er Charles Celli, rekstrarstjóri USAerospace, en hann hefur meðal annars gengt stjórnunarstöðu hjá Boeing, McDonnell Douglas og Gulfstream Aerospace Corporation.

WOW air varð gjaldþrota að morgni 28. mars í vor og eru því tæpir sex mánuðir frá því að félagið hvarf af íslenskum flugmarkaði en við það dróst sætaframboð til Íslands saman um 28 prósent.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga