flugfréttir
Turkmenistan Airlines pantar Boeing 777-200LR
Boeing 777-200LR þota Turkmenistan Airlines
Turkmenistan Airlines hefur fest kaup á einni Boeing 777-200LR þotu sem félagið á von á að fá árið 2021.
Turkmenistan hefur haft þrjár Boeing 777-200LR þotur í flota sínum og þar af eina
sem er innréttuð í VIP útgáfu.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flugfélaginu sem gefin var út sl. föstudag og en andvirði
kaupsamningsins á vélinni er metinn á 43 milljarða króna en upphaflega var tilkynnt um fyrirhugaða
pöntun á flugsýningunni í París.
Boeing 777-200LR eru einar af langdrægustu farþegaþotum heims með flugdrægi upp á
15.800 kílómetra en vélarnar komu á markað árið 2006.
Ekki kemur fram til hvaða áfangastaða félagið ætlar sér að nota Boeing 777-200LR þotuna en
hún hefur yfirleitt verið notið í flugi til fjarlægra áfangastaða vegna þess hversu mikið flugþol hún
hefur.
Alls hefur Boeing framleitt 59 eintök af Boeing 777-200LR þotunni en meðal flugfélaga sem
hafa haft þessa tegund í flota sínum eru Air India, Delta Air Lines, Emirates, Air Canada, Ethiopian
Airlines, Qatar Airways auk fleiri flugfélaga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.