flugfréttir

Condor sækir um lán til þýska ríkisins

- Allt flug Condor á áætlun þrátt fyrir gjaldþrot Thomas Cook

23. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 10:15

Boeing 757-300 þota Condor í flugtaki í Munchen

Starfsemi þýska flugfélagsins Condor er enn í gangi og hefur flugáætlun þess félags ekki raskast þrátt fyrir gjaldþrot Thomas Cook en Condor er 49 prósent í eigu Thomas Cook.

Stjórn Condor hefur sótt um tímabundið brúarlán til þýska ríkisins til þess að tryggja stöðu félagsins og styrkja lausafjárstöðu þess í kjölfar falls Thomas Cook.

Condor er eitt af þeim 12 flugfélögum og ferðaskrifstofufyrirtækjum sem voru dótturfélög Thomas Cook Group.

Þrátt fyrir að allar flugvélar Thomas Cook hafi verið kyrrsettar í kjölfar gjaldþrotsins þá hefur Condor haldið úti óskertu áætlunarflugi í dag.

Í yfirlýsingu frá Condor kemur fram að búið sé að sækja um rekstarlán til ríkisstjórnar Þýskalands og sé verið að fara yfir umsóknina.

Hafa 60 þotur í flotanum og fljúga til 90 áfangastaða

Condor hefur um 60 þotur í flota sínum en nær helmingur þeirra eru af gerðinni Boeing 767 og Boeing 757-300 en þá hefur félagið einnig 11 Airbus A320 og A321 þotur í flotanum.

Condor bendir á að félagið hafi skilað hagnaði til margra ára og stóð til fyrr á þessu ári að Lufthansa myndi fjárfesta í félaginu þar sem Thomas Cook leitaði að samstarfsaðila til að taka yfir hluta rekstursins.

„Félagið mun halda áfram að einbeita sér í því sem það gerir best sem er að fljúga viðskiptavinum okkar stundvíslega í fríið“, segir Ralf Teckentrup, framkvæmdarstjóri Condor.

Condor, sem var stofnað árið 1955, flýgur til 90 áfangastaða og hefur félagið verið mjög vinsælt meðal Þjóðverja en félagið einblínir einnig á sólarlandaferðir líkt og Thomas Cook.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga