flugfréttir

Delta hefur áhuga á að panta allt að 200 Boeing 797 þotur

23. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 12:42

Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines

Delta Air Lines hefur enn og aftur lýst yfir áhuga sínum yfir fyrirhugaðri framtíðarþotu sem Boeing ætlar að koma með á markaðinn sem kölluð hefur verið Boeing 797.

Í þetta skipti segir Ed Bastian, framkvæmdarstjóri Delta Air Lines, að félagið sjái fyrir sér að leggja inn pöntun í allt að 200 eintök af Boeing 797.

Bastian segir að Delta hafi mjög margar Boeing 767 breiðþotur og Boeing 757 þotur sem félagið þarf að fara að skipta út fyrir nýjum þotum og segir félagið að Boeing 797 sé hinn fullkomni valkostur.

„Ég hef trú á því að þeir muni koma með Boeing 797 á markaðinn. Ég vona það. Það eru mjög margar 757 og 767-ur sem eru komnar á aldur sem þarf að skipta út og þetta eru næstum því 200 flugvélar næsta áratuginn“, segir Bastian.

Boeing hefur hinsvegar haft nóg á sinni könnu varðandi vandamálið með Boeing 737 MAX þoturnar auk þess sem Boeing 777X hefur verið krefjandi verkefni á sama tíma.

Delta segir að einnig sé verið að skoða það sem er í boði hjá Airbus varðandi A320neo og Airbus A330neo breiðþoturnar en félagið hafi þó mikinn áhuga á að vita hvað Boeing hefur fram að færa.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga