flugfréttir

Starfsemi Thomas Cook Scandinavia heldur áfram

25. september 2019

|

Frétt skrifuð kl. 11:40

Airbus A330-300 breiðþota Thomas Cook Scandinavia

Skandinavíski hluti Thomas Cook Airlines mun halda áfram starfsemi sinni en allt flug þess félags stöðvaðist í um sólarhring þann 23. september á sama tíma og Thomas Cook Group varð gjaldþrota.

Thomas Cook Scandinavia hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og hefur félagið þrettán Airbus-þotur í flotanum, átta af gerðinni Airbus A320 og fimm A330 breiðþotur.

Í yfirlýsingu segir að sólarhringi síðar hélt félagið starfsemi sinni áfram og er allt flug á vegum félagsins á áætlun í dag en félagið flýgur fyrir hönd dönsku ferðaskrifstofunnar Spies. Thomas Cook Scandinavia er ekki hluti af Thomas Cook rekstarlega séð og mun félagið því halda áfram flugrekstri sem sjálfstætt félag á sínu eigin flugrekstrarleyfi.

Spies ferðaskrifstofan hafði verið í samstarfi við Thomas Cook frá árinu 2007 og segir Jan Vendelbo, framkvæmdarstjóri Spies, að ferðaskrifstofan sé vel meðvituð um að þetta sé að valda fólki áhyggjum til að byrja með en raunin er sú að skandinavíski hlutinn heldur áfram flugrekstri óháð Thomas Cook Group.

„Við erum sjálfstæð og félagið er rekið með hagnaði sem er ástæða þess að við höfum tryggt okkar rekstur“, segir Vendelbo.

Flugvélar Thomas Cook Skandinavia eru í dag á leiðinni frá Kaupmannahöfn, Billund, Osló og Stokkhólms til Gran Canaria, frá Gautaborg til Rhodes og þá er ein vél á leið frá Rhodes til Karlstad.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga