flugfréttir
Farþegi læstist inni á klósetti hjá United Airlines
- Lenti óvænt í Denver þar sem flugvirkjar náðu að opna salernishurðina
Flugvirkjar og aðrir starfsmenn reyna að opna hurðina á salerninu eftir lendingu í Denver
Farþegaþota frá United Airlines, sem var í innanlandsflugi í Bandaríkjunum sl. miðvikudag, þurfti að lenda óvænt í Denver eftir að í ljós kom að einn farþegi um borð var læstur inni á einu af salernum vélarinnar og komst ekki út.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 737-800, var á leið frá Washington til San Francisco, var í 36.000 feta hæð
yfir fylkjamörkum Colorado og Kansas þegar kona hafði læst sig inn á salerninu.
Flugmenn vélarinnar ákváðu að lenda í Denver þar sem flugvélin lenti 20 mínútum síðar og komu flugvirkjar
um borð sem náðu að opna salernishurðina að lokum.
„Við erum að vinna að því að opna hurðina, fröken. Við munum ná að losa þig út eftir smá, ok?“, heyrðist
einn flugvirkjanna segja við konuna.
Farþegarnir voru látnir skipta um flugvél í Denver sem fór í loftið skömmu síðar og flaug þeim á leiðarenda en
ekki er vitað hversvegna hurðin á klósettinu vildi ekki opnast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.