flugfréttir

Flugskóli í Slóveníu til sölu

- Óska eftir tilboðum í Adria Airways Flight School

24. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 14:11

Adria Airways Flight School hefur 8 kennsluvélar í flotanum

Stærsti flugskóli Slóveníu er nú til sölu en um er að ræða flugskólann Adria Airways Flight School sem var í eigu flugfélagsins Adria Airways sem varð gjaldþrota þann 30. september sl.

Flugskólinn óskar eftir tilboðum í rekstur skólans en verðmætasta eign skólans er rekstrarleyfi skólans til flugkennslu (ATO) sem er enn í gildi sem gerir nýjum eigendum kleift að taka við keflinu uppfylli sá aðili kröfur til þjálfunar, kennslu og til rekstur á flugskóla.

Aðrar eignir flugskólans eru tvær kennsluvélar af gerðinni PS-28 Cruiser auk flughermis en alls hefur skólinn 8 kennsluvélar í flotanum en tvær eru í eigu skólans.

Flughermirinn í skólanum er af gerðinni FNPT II

Aðrar kennsluvélar í flotanum eru af gerðinni Socata TB-10 Tobago, Diamond DA-42 auk Piper PA-28 Arrow. Þá er flughermir skólans af gerðinni FNPT II sem er vottaður af EASA í Evrópu og líkir hann eftir stjórnklefa af King Air.

Nokkrir aðilar hafa sýnt Adria Airways flugskólanum áhuga en fram kemur að gjaldþrot flugfélagsins hafi haft töluverð áhrif á flugnám hjá 30 nemendum sem stunda nám við skólann.

Adria Airways Flight School var stofnaður árið 1980 og hefur flugskólinn kennt bæði einkaflugmannsnám (PPL) og atvinnuflugmannsnám (ATPL) í yfir 30 ár.

PS-28 Cruiser kennsluvélar skólans









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga