flugfréttir

CFM nær að yfirstíga seinkanir á nýjum LEAP-hreyflum

- Afhendingar á hreyflum fyrir Boeing 737 MAX aftur á áætlun

28. október 2019

|

Frétt skrifuð kl. 07:57

Afhendingar á nýjum LEAP-hreyflum hjá CFM International hefur verið mörgum vikum eftir áætlun

Hreyflaframleiðandinn CFM International segir að fyrirtækinu hafi tekist að fullu að greiða úr þeim vanda sem hafði hindrað afhendingar á nýjum LEAP-hreyflum fyrir Boeing 737 MAX þoturnar og Airbus A320neo.

Hingað til hefur framleiðandinn ekki náð að afhenda þann fjölda hreyfla til þess að hafa í við framleiðsluna á 737 MAX þotunum en núna er framleiðsluhraðinn komin á eðlilegt stig og eru afhendingarnar á áætlun í dag.

Þetta mun auðvelda Boeing að afhenda nýjar Boeing 737 MAX þotur þegar kyrrsetningu vélanna lýkur en CFM International áætlar að ná að afhenda 1.800 hreyfla á þessu ári og 2.000 hreyfla árið 2020 sem verður hámarksafkastageta.

Framleiðsla á íhlutum hjá nokkrum framleiðendum olli töluverðum flöskuhálsi við afhendingar bæði á LEAP-1A hreyflunum fyrir Airbus A320neo þoturnar og einnig er kemur að LEAP-1B fyrir Boeing 737 MAX.

Eftir að Boeing 737 MAX þoturnar voru kyrrsettar í mars í vor minnkaði þrýstingurinn á CFM International til þess að afhenda nýja hreyfla þar sem Boeing ákvað að draga úr afkastagetu á samsetningu nýrra Boeing 737 MAX véla úr 52 þotum á mánuði niður í 42 þotur en Boeing ætlar sér að afhenda 57 þotur á mánuði fyrir lok næsta árs.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga