flugfréttir
Sun Class Airlines nýtt nafn á Thomas Cook Scandinavia
- Einn af ríkustu mönnum Noregs kaupir skandinavíska hlutann í Thomas Cook
Airbus A321 þota Thomas Cook Scandinavia á flugvellinum í Osló
Thomas Cook Scandinavia hefur fengið nýja eigendur en norskt hótel og tveir hlutabréfasjóðir hafa keypt skandinavíska hlutann af Thomas Cook og verður nafni félagsins breytt á næstunni.
Nýju eigendurnir eru Petter Stordalen, einn ríkasti maður Noregs, og skandinavíska fyrirtækið Altor Equity Partners, sem hafa hvor um sig keypt 40 prósent í Thomas Cook Scandinavia á móti breska fyrirtækinu TDR Capital sem hefur keypt 20 prósent í félaginu.
Petter Stordalen
Með þessu er búið að tryggja rekstur félagsins og störf hjá um 2.300 manns sem starfa hjá Thomas
Cook Scandinavia en tilkynnt var um nýju eigendurnar í morgun í höfuðstöðvum Ving Group, móðurfélags Thomas Cook Scandinavia.
Nýtt nafn félagsins verður Sun Class Airlines og verður merki og litum félagsins breytt
á næstunni og vélarnar málaðar í nýjum búning.
Petter Stordalen er norskur kaupsýslumaður sem hefur verið í hóteliðnaðinum í mörg ár en hann á meðal
annars hótelkeðjuna Nordic Choice sem rekur yfir 200 hótel og auk þess sem félag hans á nokkrar verslunarmiðstöðvar.
Stordalen sagði á blaðamananfundi í dag í Stokkhólmi að rekstur félagsins mun haldast óbreyttur
um sinn og viðskiptavinir geta haldið áfram að bóka flug og sólarlandaferðir hjá félaginu
þrátt fyrir eigendaskiptin.
Í höfuðstöðvum Ving Group í morgun þegar tilkynnt var um nýju eigendurnar
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.