flugfréttir
Lufthansa fellir niður 1.300 flugferðir vegna verkfalls
- Flugfreyjur og flugþjónar fara fram á bættari launakjör
Verkfallsaðgerðirnar munu skella á klukkan 23:00 í kvöld
Lufthansa mun þurfa að fella niður um 1.300 flugferðir á næstu tveimur dögum, á fimmtudag og föstudag, vegna verkfalls meðal flugfreyja og flugþjóna.
Þetta samsvarar fimmtungi af þeim 6.000 flugferðum sem Lufthansa áætlaði að fljúga
á morgun og á föstudag en flugfreyjur og flugþjónar krefjast þess að fá betri launakjör
og gaf verkalýðsfélagið UFO grænt ljós á verkfallsaðgerðirnar í vikunni.
Lufthansa reyndi að koma í veg fyrir verkfallið með því að fara fram á tímabundið lögbann
en dómstóll hafnaði þeirri kröfu félagsins.
Verkfallsaðgerðirnar munu hefjast kl. 23:00 í kvöld og er gert ráð fyrir að þær muni hafa
áhrif á 180.000 farþega sem eiga bókað flug með félaginu.
Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, hefur boðað flugfreyjur og flugþjóna að samningaborðinu í kvöld til þess að freista þess að koma í veg fyrir verkfallsaðgerðirnar
á síðustu stundu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.