flugfréttir

Tveir kynningarfundir í nóvember um flugnám hjá Keili

- Næstu atvinnuflugmannsbekkir hefjast í janúar eftir áramót

7. nóvember 2019

|

Frétt skrifuð kl. 19:22

Um borð í einni af Diamond-kennsluvélum Flugakademíu Keilis

Flugakademía Keilis mun laugardaginn 16. nóvember næstkomandi halda kynningarfund um flugnám við skólann en kynningin fer fram við aðalbyggingu Keilis í Ásbrú í Reykjanesbæ og þá fer annar kynningarfundur fram þriðjudaginn 19. nóvember í húsnæði skólans í Hafnafirði.

Þeir sem hafa hug á að stefna á flugnám, hvort sem er til einkaflugmanns eða atvinnuflugmanns, eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri þar sem allar hliðar námsins verða kynntar.

Á fundinum verður hægt að fá svör við öllu því helsta á borð við hvernig námið fer fram, fyrirkomulag þess og þá verður hægt að hitta kennarna við skólann og koma fram með allar þær spurningar sem viðkomandi hefur varðandi námið.

Flugnám er bæði krefjandi og skemmtilegt nám sem krefst mikils aga. Annars vegar er hægt að velja áfangaskipt atvinnuflugmanns nám þar sem viðkomandi tekur einkaflugmanninn fyrst áður en hann heldur áfram í atvinnuflugmannsnámið.

Flugnemi í yfirlandsflugi við Gjögur í Strandasýslu

Hinsvegar er um að ræða samtvinnað atvinnuflugmannsnám þar sem nemandi byrjar á einkaflugmannshlutann og fer strax í atvinnuflugmannshlutann í einni lotu ásamt verklega hlutanum og lýkur náminu með áhafnarsamstarfi og þeim réttindum sem til þarf til þess að sækja um starf.

Á vefsíðu Flugakademíu Keilis má nálgast allar upplýsingar um kynningarfundina og hvenær þeir hefjast.

Þess má geta að næstu bekkir í samtvinnuðu atvinnuflugmannsnámi og áfangaskiptu atvinnuflugnámi hjá Flugakademíu Keilis hefjast í janúar 2020.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga