flugfréttir
Piper Comanche fórst í íbúðarhverfi í San Antonio
- Gerði tilraun til nauðlendingar en fórst skammt frá flugbrautinni
Flak vélarinnar í gærkvöldi í nágrenni flugvallarins í San Antonio
Þrír létust í flugslysi er lítil flugvél af gerðinni Piper PA-24 Comanche brotlenti í íbúðarhverfi í San Antonio í Texas í Bandaríkjunum í gærkvöldi.
Flugvélin fór í loftið frá Sugarland-flugvellinum skammt suðvestur af Houston og var förinni heitið til Boerne norður
af San Antonio en flugmaðurinn tilkynnti um vandamál um borð þegar vélin var í aðfluginu og óskaði hann eftir því
að nauðlenda á flugvellinum í San Antonio.
Flugvélin náði ekki inn á flugbrautina á alþjóðaflugvellinum í San Antonio og brotlenti flugvélin í íbúðarhverfi skammt frá flugbrautinni.
Engan sakaði á jörðu niðri en þrír voru um borð í vélinni og komst engin af þeim lífs af.
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hefur sent sérfræðinga á vettvang auk þess sem Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) mun rannsaka slysið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.