flugfréttir
Fokker 100 þota fórst í flugtaki í Kazakhstan
- Fimmtán látnir í flugslysi við flugvöllinn í Almaty
96 farþegar voru um borð í þotunni og fimm manna áhöfn
Að minnsta kosti 15 eru látnir eftir að farþegaþota af gerðinni Fokker 100 fórst skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í borginni Almaty í Kazakhstan í gær.
Þotan, sem var frá flugfélaginu Bek Air, var í innanlandsflugi á leið til Nursultan Nazerbayev flugvallarins í borginni Nur-Sultan, sem áður hét Astana, með 96 farþega innanborðs og fimm manna áhöfn.
Flugvélin missti hæð skömmu eftir að hún hóf sig á loft en brotlenti og rann í gegnum steinvegg og staðnæmdist á tveggja hæða íbúðarhúsi nálægt flugbrautarendanum.
35 manns var bjargað lifandi úr flaki vélarinnar en af þeim voru 22 mjög alvarlega slasaðir. Enginn eldur kom upp
en þotan brotnaði í tvennt.
Þotan staðnæmdist á tveggja hæða íbúðarhúsi við enda flugbrautarinnar
Að sögn eins farþega, sem komst lífs af, þá virtist eins og flugvélin ætti í vandræðum með að hefja sig á loft þar sem hún
skall tvisvar niður í brautina í flugbrautarbruninu og hrisstist og nötraði þegar hún hóf sig loksins á loft skömmu áður
en hún brotlenti.
Kassym-Zhomart Tokayev, forseti Kazakhstan, hefur lýst því yfir að þeir sem bera ábyrgð á flugslysinu verður
„refsað heiftarlega“ og dregnir fyrir dómstóla en flugstjóri vélarinnar lést í slysinu en hann var 58 ára.
Björgunarlið að störfum í rústunum
Bek Air er þó ekki meðal þeirra flugfélaga sem hafa verið á sérstökum lista hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO) vegna
annmarka er kemur að flugöryggi en ríkisstjórn landsins hefur lengi barist fyrir því að viðhalda flugörryggisstuðli félagsins.
Flugmálayfirvöld í Kazakhstan hafa kyrrsett allar Fokker 100 þotur í landinu í kjölfar slyssins en Bek Air hefur átta
aðrar þotur sömu gerðar í flotanum sem eru frá 24 til 30 ára gamlar.
Þá hafa flugmálayfirvöld í landinu einnig svipt Bek Air flugrekstarleyfinu á meðan rannsókn á slysinu fer fram.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.