flugfréttir
Aeroflot stundvísasta flugfélag heims árið 2019
Stundvísin hjá Aeroflot árið 2019 mældist 86.6 prósent
Aeroflot var stundvísasta flugfélag heims árið 2019 í hópi þeirra flugfélag sem teljast ekki til lágfargjaldafélaga samkvæmt skýrslu um stundvísi flugfélaganna sem fyrirtækið Cirium birti í dag.
Þetta er í 11. sinn sem Cirium birtir árskýrslu um frammistöðu flugfélaganna en eins og áður segir þá er
Aeroflot í 1. sæti með stundvísi upp á 86.6 prósent.
Í öðru sæti kemur japanska flugfélagið ANA (All Nippon Airways) með stundvísi upp á 86.2% og í því þriðja
kemur Delta Air Lines en þar á bæ mældist stundvísin 85.6 prósent.
Aeroflot var einnig stundvísasta flugfélagið í Evrópu en í öðru sætinu af evrópskum flugfélögum
er einnig rússneskt flugfélag en þar situr S7 Airlines með 84% stundvísi og í 3. sæti var spænska
flugfélagið Iberia.
Rússar eru einnig í 1. sæti er kemur að stundvísi á flugvöllum í heiminum en 95% af öllum brottförum voru á áætlun
á Sheremetyovo-flugvellinum í Moskvu árið 2019 en sjö kínverskir flugvellir fylgja þar á eftir frá 2. sætinu til
áttunda sætisins sem eru flugvellirnir í Guangzhou, Shanghai, Kunming, Beijing, Shenzhen, Xianyang og Chongging.
Sá flugvöllur í Evrópu sem var með mestu stundvísina fyrir utan Rússland var Gardermoen-flugvöllurinn
í Osló en þar voru 83 prósent af brottförum á áætlun.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.