flugfréttir
Kveða niður orðróm um að Air India sé að hætta starfsemi
Flugvélar Air India
Air India hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að flugfélagið indverska sé langt frá því að vera að hætta starfsemi sinni vegna rekstarerfiðleika.
Í bréfi sem Meenakshi Mallik, rekstarstjóri Air India, sendir til samstarfsfyrirtækja og viðskiptavina, segir að orðrómur
um að flugfélagið sé að fara að leggja árar í bát eiga sér engar stoðir í raunveruleikanum.
Fram kemur fram að rekstarumhverfi Air India sé mjög öruggt og sé félagið að takast á við þau verkefni sem eru
í gangi sem snúa að rekstrinum.
Fljótlega eftir áramót gaf ríkisstjórn Indlands í skyn að örvæntingarfull leit færi fram að nýjum eigendum til þess að taka
yfir rekstur félagsins og að einkavæðing væri eina leiðin til þess að tryggja rekstur félagsins sem væri í mikilli óvissu.
Skuldir Air India nema yfir 1.300 milljörðum króna og hefur ríkisstjórn Indlands ekki viljað setja meira fé inn í rekstur
félagsins þar sem allt lítur út fyrir að ekki sé hægt að snúa rekstri félagsins yfir í hagnað þrátt fyrir margar tilraunir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.