flugfréttir
Avianca afpantar tuttugu Airbus A320neo þotur
Airbus A320neo þota Avianca
Kólumbíska flugfélagið Avianca hefur hætt við pöntun í tuttugu farþegaþotur af gerðinni Airbus A320neo og seinkað afhendingum á fleiri A320neo þotum fram til ársins 2025.
Avianca lagði inn pöntun til Airbus í 100 þotur úr A320neo fjölskyldunni í maí árið 2015 auk þess sem fleiri þotur
voru pantaðar í kjölfarið og átti félagið von á 108 þotum í heildina.
Eftir breytinguna á Avianca von á 88 Airbus A320neo þotum og verður beðið með afhendingar á fjölda véla til ársins
2025 og verða um 20 þotur afhentar á ári fram til ársins 2029.
Avianca hefur innleitt rekstaráætlunina „Avianca 2021“ sem miðar að því að bæta rekstarafkomu félagsins á næstunni
og er endurskoðun á flotastefnu hluti að því.
Avianca hefur fengið fimm Airbus A320neo þotur afhentar og tvær af gerðinni A321neo en þá á félagið
einnig von á átta Dreamliner-þotum frá Boeing af gerðinni Boeing 787-9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.