flugfréttir

Farþegaþota rann út á hraðbraut eftir lendingu í Íran

27. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:45

McDonnell Douglas MD-83 þotan var í innanlandsflugi og var að koma frá Teheran þegar hún rann út af brautinni

Farþegaþota frá Caspian Airlines endaði út á miðri umferðargötu í Íran í morgun eftir að þotan rann út af flugbraut í lendingu á flugvellinum í borginni Mahshahr í suðvesturhluta landsins.

Þotan, sem er af gerðinni McDonnell Douglas MD-83 og var að koma frá Teheran í innanlandsflugi, staðnæmdist 90 metrum fyrir aftan brautarendann. 130 farþegar voru um borð í þotunni og sakaði engan en farþegarnir flúðu út um neyðarútgang og forðuðu sér í burtu á meðan vegfarendur flyktust að vélinni.

Atvikið átti sér stað klukkan 3:14 í nótt að íslenskum tíma eða klukkan 6:44 að írönskum tíma. Meðfylgjandi myndband sýnir hvar vélin staðnæmdist þversum á stórri umferðargötu sem liggur framhjá flugbraut vallarins.

Um 130 farþegar voru um borð í þotunni og sakaði engan

Íranska sjónvarpið segir að vélin hafi komið hraðar inn til lendingar en tíðkast og hafi lendingin orðið það hörð að hjólastell brotnaði undan vélinni. Írönsk flugmálayfirvöld hafa hafið rannsókn á atvikinu.

McDonnell Douglas MD-83 þotan er 25 ára gömul og var hún upphaflega afhent til AOM French Airlines árið 1995 en þotan hefur verið í flota Khors Air í Úkraínu, Air Burkina, Avianca, Jetsgo og Air Liberté áður en hún fór í flota Caspian Airlines árið 2012.

Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga