flugfréttir

Óljósar upplýsingar varðandi flugslys í Afghanistan

- Ariana Afghan Airlines segir að öll þeirra flug séu á áætlun

27. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:53

Ekki er enn vitað um hvort að flugslys hafi átt sér stað og hvaða flugvél á í hlut

Óstaðfestar heimildir herma að flugslys hafi átt sér stað í Afghanistan í dag og sé um að ræða farþegaþotu með yfir 80 farþega um borð en aðrir fréttamiðlar segja að 110 manns séu um borð.

Fréttamiðlar hafa greint frá því að um sé að ræða farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-500 frá flugfélaginu Ariana Afghan Airlines en flugfélagið hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að engin flugvél hjá þeim hafi lent í flugslysi og séu öll flug félagsins á áætlun.

Fram kemur að þotan hafi farist á leið sinni frá borginni Herat í Afghanistan á leið til Delhi á Indlandi en það áætlunarflug er hinsvegar sjáanlegt á Flightradar24 og er þessa stundina í 33.000 fetum, skammt norðvestur af Delhi.

Þrátt fyrir þetta hefur verið tilkynnt um logandi flugvélaflak á Sadozai-svæðinu nálægt Ghazni í Afghanistan en yfirmenn þar í landi hafa greint frá því að um sé að ræða erlenda flugvél og sé flakið brunnið til kaldra kola.

Þá kemur einnig fram að flugvélin hafi brotlent í gær og hafi einum flugmanni verið bjargað úr flakinu en engar upplýsingar hafa enn borist varðandi flugvéltegund eða flugfélag en erfiðlega hefur gengið að fá upplýsingar þar sem flugvélin brotlenti á svæði sem er undir stjórn Talíbana.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga