flugfréttir

EASA gefur út leiðbeiningar vegna kórónaveirunnar

28. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 07:41

EASA ráðleggur til að mynda flugfélögum að hafa um borð viðeigandi sjúkrabúnað fyrir áhafnir sem er tiltækur ef grunur leikur á smiti um borð í flugi

Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) hafa gefið frá sér fyrirmæli og leiðbeiningar til flugfélaga og flugvalla vegna kórónaveirunnar með ráðleggingum um þær ráðstafanir sem þarf að hafa í huga til að hefta útbreiðslu veirunnar og tryggja öryggi í flugi.

EASA ráðleggur til að mynda flugfélögum að hafa um borð viðeigandi sjúkrabúnað fyrir áhafnir sem er tiltækur ef upp kemur atvik þar sem grunur leikur á að einstaklingur um borð sé smitaður af veirunni sé verið að fljúga til þeirra landa þar sem veiran hefur greinst.

Viðeigandi sjúkrakassi skal innihalda varnarbúning, sótthreinsandi þurrkur og eiturefnabúnað. Slíkur sjúkrakassi er sérstaklega hannaður til þess að verja áhafnir gegn smiti á meðan þau grípa til ráðstafanna um borð í vélinni.

Þá eru flugfélög hvött til þess að gefa áhöfnum ítarlegar upplýsingar um stöðu veirunnar hverju sinni þegar viðdvöl er höfð á áfangastöðum í Kína auk þess sem veirusjúkrabúnaður á að vera um borð í flugvélunum.

Nýjustu tölur benda til þess að yfir 100 einstaklingar hafa nú þegar látist eftir að hafa smitast af kórónaveirunni og þá hafa yfir 4.500 tilvik um smit verið skráð.

Meðal annarra landa sem smit hafa verið skráð fyrir utan Kína eru lönd á borð við Japan, Kanada, Bandaríkin, Frakkland, Ástralía, Tæland, Singapore og Sri Lanka.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga