flugfréttir

Samstarf Boeing og Embraer fær grænt ljós frá Brasilíu

28. janúar 2020

|

Frétt skrifuð kl. 11:17

Í fyrra var tilkynnt um að Boeing myndi kaupa 80% hlut í farþegaþotuframleiðslu Embraer og taka einnig yfir sölu- og markaðsdeild framleiðandans brasilíska.

Stjórnvöld í Brasilíu hafa gefið grænt ljós fyrir miðamiklu samstarfi sem fyrirhugað er milli Boeing og Embraer og eiga þá flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) aðeins eftir að gefa leyfi fyrir samstarfinu.

Með þessu verður Boeing einu skrefi nær því að ganga að kaupum á Embraer en í fyrra var tilkynnt um að Boeing myndi kaupa 80% hlut í farþegaþotuframleiðslu Embraer og taka einnig yfir sölu- og markaðsdeild framleiðandans brasilíska.

Embraer er einn stærsti flugvélaframleiðandi heims á eftir Boeing og Airbus en með kaupunum mun Boeing loksins færa sig inn á markað minni farþegaþotna sem taka færri en 100 farþega.

„Við höfum átt náið samstarf með Evrópusambandinu og sýnt þeim fram á hvernig við sjáum fyrir okkur fyrirhugað samstarf og okkur hlakkar til að fá niðurstöðuna frá þeim“, segir Marc Allen, yfirmaður yfir samstarfsdeild Boeing og Embraer.

Paulo Cesar de Souza e Silva, framkvæmdarstjóri Embraer, segir að um einn stærsta samning að ræða meðal flugvélaframleiðanda í flugiðnaðinum og gerir hann ráð fyrir því að yfirtaka Boeing á Embraer eigi eftir að koma viðskiptavinum, fjárfestum og starfsmönnum til góða auk þess sem viðskiptin eigi eftir að glæða nýju lífi í sölu Embraer-þotna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga