flugfréttir
Yfirflaug ranga flugbraut í go-aroundi í mikilli þoku
Bombardier CRJ700 þota frá Hop!
Rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi rannsaka nú atvik sem átti sér stað á flugvellinum í Lyon fyrr í þessum mánuði er þota af gerðinni Bombardier CRJ700 var í aðflugi í lélegu skyggni.
Þotan sem er frá flugfélaginu Hop! var að koma frá Lille þann 23. janúar sl. og var flugvélin í aðflugi að braut 34R
í lélegu skyggni og myrkri en þá voru 25 mínútur í sólarupprás.
Láskyggnisástand var á flugvellinum vegna frostþoku þar sem skyggni var komið niður í 400 metra og flugbrautarskyggni
um 275 metrar sem fór lækkandi.
Þotan var að fljúga CAT III aðflug en fram kemur að flugvélin hafi sveigt til vinstri á lokastefnu og vegna þessa ákváðu
flugmennirnir að hætta við aðflugið og fara í fráhvarfsflug (go-around).
Þotan fór hinsvegar yfir á aðra flugbraut (35L) sem liggur samsíða brautinni sem vélin átti að lenda á og framkvæmdu flugmennirnir
fráhvarfsflugið með því að fylgja þeirri braut í brottfluginu. Þá kemur fram að flugvélin hafi flogið lágt yfir
byggingar á flugvellinum.
Flugvélin lenti skömmu síðar í annarri tilraun en flugmálayfirvöld flokka tilvikið sem alvarlegt flugatvik.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.