flugfréttir

SAS: „Eftirspurn eftir flugsætum er gott sem horfin“

- Scandinavian sendir 90 prósent starfsfólks heim í launalaust leyfi

16. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 06:21

Um 10.000 starfsmenn SAS verða sendir heim í launalaust leyfi

Skandinavíska flugfélagið SAS hefur tilkynnt að félagið muni leggja niður að mestu allt áætlunarflug félagsins frá og með deginum í dag, 16. mars, vegna útbreiðslu kórónaveirunnar og einnig segja upp tímabundið um 90% af öllu starfsfólki.

Félagið segir að eftirspurn eftir flugsætum sé að mestu horfin og neyðist félagið því að senda um 10.000 starfsmenn heim í launalaust leyfi.

„Eftirspurn eftir flugi til og frá Skandinavíu hefur dregist saman það mikið að hún er eiginlega gott sem horfin. Við höfum ákveðið að aðlaga reksturinn að þessum breyttu aðstæðum frá og með morgundeginum og munum við tímabundið gera hlé á stærstum hluta af rekstri félagsins og fækka flugferðum í öllu leiðarkerfinu okkar“, sagði Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóri SAS í gær.

„Það er augljóst að flugfélag með engar tekjur er eitthvað sem gengur ekki í langan tíma en við höfum náð að byggja félagið að undanförnu vel upp fjárhagslega og munum við ná að standa þetta af okkur eins og er“, bætti Gustafson við.

Þetta eru viðamestu niðurskurðaraðgerðir sem SAS hefur þurft að grípa til en félagið mun halda uppi flugferðum til nokkurra áfangastað til þess að leyfa fólki að snúa aftur til síns heima í Skandinavíu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga