flugfréttir
Flugvöllurinn í Köben sendir 1.500 starfsmenn heim
- Farþegum um flugstöðina hefur fækkað um 70 prósent
Það voru ekki margir á ferli í flugstöðinni á flugvellinum í Kaupmannahöfn í gær
Flugvöllurinn í Kaupmannahöfn hefur sent 1.500 starfsmenn heim í launalaust leyfi vegna samdráttar í flugumferð um völlinn sökum kórónaveirunnar.
Alls starfa 2.600 manns fyrir Copenhagen Airport og allt að 23.000 starfsmenn eru í störfum sem tengjast með
einum eða öðrum hætti Kaupmannahafnarflugvellinum ef tekið er með í reikninginn önnur fyrirtæki á borð við fríhafnarverslanir, flugvallareldhús og fleira.
Stjórn flugvallarins hefur hafið viðræður við verkalýðsfélög til þess að sjá til að flugvöllurinn geti starfrækt
áfram á lágmarksafköstum á meðan að á heimsfaraldrinum stendur.
Mjög tómlegt hefur verið yfir að líta á flugvellinum í Kaupmannahöfn líkt og á öðrum flugvöllum
og gæti komið til þess að verslanir í flugstöðinni muni loka tímabundið en á flugvellinum má
finna yfir 90 fríhafnarverslanir og 46 veitingastaði.
Fram kemur að farþegum um flugvöllinn í Kaupmannahöfn hafi fækkað um 70 prósent og er talið að þeim
eigi eftir að halda áfram að fækka á næstu dögum vegna samdráttar í flugi í Evrópu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar
og einnig vegna aðgerða Evrópulanda um að loka löndum til að hefta útbreiðsluna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.