flugfréttir

240 sagt upp hjá Icelandair

23. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 10:05

Boeing 757 þota Icelandair á Keflavíkurflugvelli

Icelandair hefur ákveðið að grípa til frekari aðgerða vegna útbreiðslu kórónuveirunnar og hefur þar af leiðandi um 240 starfsmönnum verið sagt upp.

Þetta var tilkynnt í morgun en uppsögnin nær til allra deilda innan félagsins og þá verða 92% þeirra starfsmanna, sem halda starfi sínu, lækkaðir í launum tímabundið sem nemur tveggja stafa prósentutölu.

Fram kemur að laun starfsmanna lækki um 20% á meðan laun framkvæmdarstjóra lækki um 25% og þá munu laun forstjóra og stjórnarmanna lækka um 30 prósent.

Félagið flýgur í dag um 14% af upphaflegri flugáætlun sem er á pari við skerðingu meðal annarra flugfélaga sem fljúga aðeins brot af þeim flugferðum sem voru áætluð.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að for­send­ur fyr­ir milli­landa­flugi og ferðalög­um hafa breyst veru­lega á skömm­um tíma vegna út­breiðslu COVID-19 veirunn­ar. Icelanda­ir Group hef­ur á und­an­förn­um vik­um gripið til víðtækra ráðstaf­ana til þess að tryggja rekstr­ar­grund­völl fé­lags­ins til framtíðar og á sama tíma er það mark­mið fé­lags­ins að verja störf eins og mögu­legt er og þjóna viðskipta­vin­um eft­ir bestu getu.

Aðeins eitt flug er á áætlun í dag hjá Icelandair sem er flugið til Boston en þær flugferðir sem fyrirhugaðar voru og er búið að aflýsa vegna COVID-19 eru flug til Munchen, Frankfurt, Helinski, Zurich, París, Brussel, Kaupmannahöfn, Dublin, London Gatwick, Osló, Glasgow, Manchester, Kaupmannahöfn, London Heathrow, Chicago, Minneapolis, Washington Dulles, New York JFK, Newark-Liberty, Seattle, Toronto og Orlando.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga