flugfréttir

Piper framleiðir andlitshlífar fyrir heilbrigðisstarfsfólk

- Gefa sjúkrahúsinu í Vero Beach yfir 1.300 grímur

30. mars 2020

|

Frétt skrifuð kl. 09:25

Piper Aircraft hóf fjöldaframleiðslu á andlitshlífðarbúnaði sl. föstudag

Flugvélaframleiðandinn Piper Aircraft hefur ákveðið að láta gott af sér leiða í baráttunni við kórónaveiruna og COVID-19 með því að hefja framleiðslu á andlitshlífðarbúnaði fyrir heilbrigðisstarfsfólk.

Búnaðurinn verður í fyrstu framleiddur fyrir starfsfólk á Cleveland Clinic Indian River sjúkrahúsinu í Vero Beach sem er sami bær og þar sem Piper Aircraft hefur höfuðstöðvar.

Piper Aircraft segir að framleiðandinn geti framleitt hlífarðbúnað sem settur er fyrir andlit þar sem verksmiðjurnar eigi nóg af efni sem verður afgangs en efnið er það sama og er notað í framleiðslu á íhlutum í nýjar Piper-flugvélar.

Fram kemur að verkfræðingar hjá Piper hafi lokið við prótótýpu af andlitshlíf sem búið er að prófa og gera tilraunir með og sé fjöldaframleiðsla nú að hefjast.

„Það er komin tími fyrir aðgerðir, samstarf og samvinnu. Sem eitt lið þá getum við aðstoðað fólk í neyð og þá sem eru að berjast í fremstu línu á þessum tímum“, segir James Funk, rekstarstjóri Piper-verksmiðjanna.

Piper segist hafa nægar birgðir af hráefni til þess að búa til andlitshlífar og nægt starfsfólk sem er ekki að vinna við að framleiða flugvélar í augnablikinu og verður því hægt að búa til þúsundir andlitshlífa á dag á næstunni.

Þá ætlar Piper Aircraft einnig að gefa um 1.300 grímur af gerðinni 3M N95 til sjúkrahússins í Vero Beach sem eru þær birgðir sem framleiðandinn á en starfsmenn í flugvélaverksmiðjunum nota sambærilegan hlífðarbúnað og starfsfólk á spítölum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga