flugfréttir
Etihad stefnir á að fljúga með farþega aftur í vikunni
- Hefja aðeins flug til örfárra áfangastaða fyrst um sinn
Boeing 777-300ER og Airbus A330-200 þotur Etihad Airways á flugvellinum í Abu Dhabi
Etihad Airways bíður nú eftir því að fá formlegt leyfi til þess að hefja farþegaflug að nýju en þó með miklum takmörkunum en félagið lagði niður allt áætlunarflug með farþega líkt og Emirates fyrr í þessum mánuði.
Etihad Airways stefnir á að geta byrjað núna í byrjun vikunnar á að fljúga aftur til Seoúl í Suður-Kóreu
sem verður eini áfangastaðurinn í nokkra daga en von er á að hægt verði að hefja einnig flug
til Melbourne, Singapore, Manila, Bangkok, Jakarta og til Amsterdam um leið og formlegt leyfi verður gefið út frá flugmálayfirvöldum í landinu.
Etihad hefur sl. daga, líkt og mörg önnur flugfélög, aðeins flogið sérstakar flugferðir til þess að flytja íbúa
landsins aftur heim vegna heimsfaraldursins auk þess sem félagið hefur flogið fraktflug.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.