flugfréttir
Engar uppsagnir þrátt fyrir að allt flug liggur niðri
- AirAsia þarf ekki að reka starfsfólk vegna COVID-19
Flugvélar AirAsia
Tony Fernandes, framkvæmdarstjóri AirAsia Group, segir að fyrirtækið sé að ná því að sleppa við uppsagnir og sé móðurfélagið búið að halda öllu starfsfólki þrátt fyrir að 96% af flugflota allra dótturfélaganna sé kyrrsettur vegna COVID-19.
„Það eru engar tekjur að koma inn en við erum að gera allt sem hægt er til þess að draga úr rekstarkostnaði á þessum tímum
svo að við getum byrjað aftur sem heimsins stærsta lágfargjaldafélag að nýju“, segir Fernandes í yfirlýsingu frá fyrirtækinu.
Fernandes tekur fram að Kamarudin Meranun, forstjóri AirAsia Group, fái engin laun þessa daganna á meðan þessir
tímar ganga yfir en á sama tíma lækka aðrir starfsmenn tímabundið í launum og nemur sú lækkun allt frá 15 til 75 prósentum.
Að öðru leyti liggur mest allt flug hjá AirAsia niðri út aprílmánuð á meðan starfsemi AirAsia Japan og AirAsia á Filippseyjum
liggur niðri til 30. apríl og starfsemi AirAsia X mun liggja niðri fram til enda maímánaðar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.