flugfréttir
Eurocontrol frestar greiðslum á flugumferðargjöldum
Eurocontrol annast alla flugumferðarstjórnun og flugleiðsöguþjónustu í Evrópu
Evrópska flugumferðarstofnunin Eurocontrol hefur ákveðið að gefa frest vegna greiðslu á flugleiðsögugjöldum um evrópska lofthelgi vegna COVID-19.
Í tilkynningu frá stofnuninni segir að með þessu muni flugfélög losna við það að greiða fleiri tugi milljarða í greiðslur
á flugleiðsögugjöldum á meðan heimsfaraldurinn gengur yfir sem mun létta á rekstri flugfélaga.
Ákveðið hefur verið að fresta greiðslum fyrir tímabilið frá febrúar fram yfir maí um allt að 14 mánuði en tíu
stærstu flugfélög Bretlands hefðu til að mynda þurft að greiða um 8,4 milljarða króna í flugumferðargjöld á næstunni. Eurocontrol segir að þessar aðgerðir muni létta á greiðslum fyrir flugfélög sem nemur
samtals 197 milljörðum króna á tímabilinu.
Eamonn Brennan, yfirmaður Eurocontrol, segir að mörg evrópsk flugfélög höfðu haft samband við stofnunina
til að láta vita að þau væru ekki í stöðu til að geta greitt flugumferðargjöld vegna samdráttar í tekjum vegna COVID-19.
Grant Shapps, samgönguráðherra Bretlands, fagnar þessari niðurstöðu og segir að þetta muni auka líkur flugfélaga
í Evrópu til þess að komast undan heimsfaraldrinum.
Tim Alderslade, framkvæmdarstjóri félags breskra flugfélaga, tekur í sama streng og segir að um kærkomna aðgerðir
að ræða af hálfu Eurocontrol en tekur fram að enn frekari aðgerðir séu nauðsynlegar og leggur til að greiðslum
á flugumferðargjöldum fyrir allt árið 2020 verði frestað eða greiðslur felldar niður að hluta til.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.