flugfréttir
Aeroflot gerir ekki ráð fyrir neinu millilandaflugi í sumar
Farþegar horfa á upplýsingaskjái á flugvelli í Rússlandi
Aeroflot hefur ákveðið að fresta allri sölu á farmiðum í millilandaflugi fram í ágúst að minnsta kosti þar sem mikil óvissa ríkir um hvenær rússnesk stjórnvöld munu aflétta ferðabanni.
Sé leitað að millilandaflugi í bókunarkerfi á vefsíðu Aeroflot kemur í ljós að ekkert flug utan Rússlands er í boði
fyrr en 1. ágúst í sumar en Rússar lokuðu fyrir allt flug til landsins þann 27. mars síðastliðinn.
Síðan þá hefur Aeroflot aðeins flogið nokkrar sérstakar flugferðir og þá aðallega til þess að koma rússneskum
ríkisborgurum til síns heima frá útlöndum.
Í sjónvarpsviðtali sem fram fór sl. miðvikudag lofaði Vladimir Pútín, forseti Rússlands, aðgerðarpakka
upp á 44 milljarða króna fyrir flugfélög í Rússlandi til að tryggja rekstur þeirra vegna COVID-19 heimsfaraldursins
en sérfræðingar efast um að sú upphæð sé nóg þar sem sala á flugmiðum meðal flugfélaga í landinu
hefur dregist saman um 94 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.