flugfréttir

Búast við að met verði sett í fraktflugi í dag á Heathrow

- Talið að 70 flugvélar með sjúkrabirgðir muni fara um Heathrow í dag

21. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 17:06

Boeing 777 þota British Airways á London Heathrow eftir flug með sjúkrabirgðir

Met verður sett á Heathrow-flugvellinum í London er kemur að fjölda fraktflugferða um völlinn en gert er ráð fyrir að 70 fraktflugvélar muni lenda á Heathrow í dag.

Þetta er mesti fjöldi fraktflugvéla sem farið hefur um þennan stærsta flugvöll Bretlands en flestallar fraktvélarnar eru að koma með sjúkrabirgðir til Bretlands vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Von er á því að yfir 300 flugvélar muni fljúga með frakt um London Heathrow í þessari viku en nóg er að lendingarplássum þessa daganna á Heathrow sem að öðru leyti hefur verið það annasamur að flugvélar í farþegaflugi hafa í mörg ár lent á tveggja mínútna fresti á vellinum frá klukkan 4:30 á morgnanna og alveg fram að miðnætti.

Enginn flugvöllur í Evrópu hefur verið eins þétt setinn og Heathrow er kemur að brottförum og komum í farþegaflugi en í mars snarfækkaði flugferðum vegna COVID-19 og var 52% minni umferð um völlinn í þeim mánuði og hefur verið enn minni flugumferð núna í apríl.

Hinsvegar hefur fraktflug aukist töluvert um Heathrow sl. vikur og þá sérstaklega eftir að ákveðið var að gera Heathrow að tímabundinni fraktmiðstöð fyrir flugvélar sem eru að fljúga með sjúkrabirgðir til Bretlands vegna kórónuveirufaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga