flugfréttir

Air Mauritius gjaldþrota

22. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 14:54

Airbus A340 breiðþota Air Mauritius

Flugfélagið Air Mauritius hefur lýst yfir gjaldþroti og hefur félagið hætt allri starfsemi frá og með deginum í dag.

Air Mauritius var ríkisflugfélagið á Máritíus-eyjunum í Indlandshafi en saga félagsins nær yfir 50 ár aftur í tímann en það var stofnað árið 1967.

Air Mauritius hafði átt í fjarhagsvanda áður en heimsfaraldurinn blossaði upp en COVID-19 gerði félaginu enn erfiðara fyrir og hefur faraldurinn leitt til þess að stjórnin sá enga aðra stöðu í myndinni en að sækja um gjaldþrotaskipti.

Air Mauritius hafði 13 flutvélar í flota sínum. Þrjár af gerðinni ATR 72-500, tvær Airbus A340-300 breiðþotur, tvær A330-900 þotur, tvær breiðþotur af gerðinni Airbus A330-200, tvær Airbus A319 og þá hafði félagið fengið tvær nýjar Airbus A350-900 þotur afhentar.

Félagið flaug til fjölmargra áfangastaða í Asíu, Evrópu, Ástralíu og innan Afríku en félagið flaug meðal annars á Heathrow-flugvöllinn í London. Air Mauritius hafði undir það síðasta skorið töluvert niður í leiðarkerfinu vegna rekstarvanda og hætt flugi til fjölmargra áfangastaða til þess að draga úr taprekstri.

Air Mauritius var nýbúið að fá tvær Airbus A350 þotur afhentar

Air Mauritius var stofnað þann 14. júní árið 1967 í samvinnu milli Air France og ríkisstjórnar Máritíus og hóf félagið flugrekstur árið 1972 með eina Piper PA-31 Navajo flugvélar og var fyrsta flug félagsins frá eyjunum til Rodrigues-eyjunnar innan Máritíus.

Félagið hóf ári síðar sitt fyrsta millilandaflug með Vickers VC19 flugvél frá British Airways og byrjaði félagið að þá að bjóða upp á flug til London Heathrow en fyrsta millilandaflug félagsins á sínum eigin vegum var flogið með Boeing 707 þotu árið 1977.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga