flugfréttir

Þremur breiðþotum Icelandair breytt tímabundið í fraktvélar

- Icelandair semur um 45 flugferðir á milli Þýskalands og Kína

24. apríl 2020

|

Frétt skrifuð kl. 15:18

Boeing 767 breiðþota Icelandair á Keflavíkurflugvelli þann 2. maí árið 2016

Icelandair hefur náð samkomulagi við þýska fyrirtækið DB Schenker um fraktflug á milli Þýskalands og Kína og verður þremur Boeing 767 breiðþotum félagsins breytt tímabundið í fraktvélar vegna þessa.

Sætin í breiðþotunum þremur verða fjarlægð úr farþegarými vélanna svo hægt sé að mynda pláss til þess að flytja vörur vegna verkefnisins sem varðar flutning á sjúkragögnum og heilbrigðisvörum frá Kína til Þýskalands.

Samningurinn nær yfir að minnsta kosti 45 flugferðir á milli Shanghai og Munchen en einnig verður flogið með vörur frá Shanghai til Keflavíkur og áfram yfir til Chicago í Bandaríkjunum.

Um daglegar flugferðir eru að ræða á milli Munchen og Shanghai og verður fyrsta flugið farið strax á morgun en Icelanda­ir Cargo og Loft­leiðir Icelandic, dótt­ur­fé­lög Icelanda­ir Group, hafa um­sjón með und­ir­bún­ingi og fram­kvæmd verk­efn­is­ins.

Farþegarýmið um borð í „Svörtuborgum“, einni af Boeing 767 breiðþotum Icelandair

Í tilkynningu frá Icelandair Group segir meðal annars að sveigjanleiki til þess að bregðast skjótt við sé einn af sterkum eiginleikum Icelandair og geti félagið því oftast gripið slík tækifæri sem gefast.

Um borð í hverri áhöfn verða um tólf manns sem samanstendur af flugmönnum, flugvirkjum, hlaðmönnum ásamt öðru starfsfólki.

Mögulega kemur til greina að ganga frá leigusamningi á fjórðu Boeing 767 breiðþotu Icelandair vegna annars sambærilegs verkefnis sem myndi þá einnig hefja fraktflug til Kína og Evrópu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga