flugfréttir
Afhendingar á ARJ21 þotunni frá COMAC hefjast að nýju
COMAC hefur afhent fyrstu ARJ21-700 þotuna eftir að flugvélaverksmiðjurnar opnuðu að nýju
Það hefur ekki borið eins mikið á að flugvélaframleiðendur hafi verið að afhenda nýjar farþegaþotur til viðskiptavina sl. vikur enda hefur flugiðnaðurinn orðið verulega fyrir barðinu á COVID-19 heimsfaraldrinum.
Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC hefur hinsvegar afhent fyrsta eintakið af ARJ21 þotunni
eftir að flugvélaverksmiðjurnar opnuðu að nýju eftir að þeim var lokað vegna kórónuveirufaraldursins.
Þotan, sem afhent var að þessu sinni, er 24. þotan af þessari gerð sem afhent er og fór
hún til kínverska flugfélagsins Chengdu Airlines.
Chengdu Airlines hefur fengið yfir tuttugu ARJ21-700 þotur afhentar frá COMAC en félagið
fékk þá fyrstu afhenta árið 2015.
COMAC hefur fengið pantanir í 221 þotu af þessari gerð en flestir viðskiptavinirnir eru flugfélög
og flugvélaleigufyrirtæki í Kína en þá hefur bandaríska flugvélaleigan GECAS pantað fimm eintök.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.