flugfréttir
Færri Boeing 787 og 777 þotur verða framleiddar
- Stefna á að framleiða 31 Boeing 737 MAX þotu árið 2021
Boeing 787 þotur fyrir framan verksmiðjur Boeing í Everett
Boeing hefur tilkynnt að til standi að draga úr framleiðslu á Dreamliner-þotunum og einnig Boeing 777 þotunum.
Til stendur að afkastageta á framleiðslu á Boeing 787 fari úr fjórtán þotum á mánuði niður í 10 þotur á þessu ári
og árið 2021 og niður í aðeins 7 þotur árið 2022. Þá mun framleiðslan á Boeing 777 minnka úr fimm þotum á mánuði
niður í 3 á mánuði árið 2021.
Ástæða þess að Boeing ætlar að hægja á framleiðslunni á Boeing 787 er sú að framleiðandinn spáir
því að millilandaflug þurfi mun meiri tíma til að ná sér á strik í heiminum eftir COVID-19 heldur en innanlandsflug
sem veldur því að minni eftirspurn verður meðal flugfélaga eftir fleiri þotum til langsflugs en gert var ráð fyrir.
Þessar breytingar eru gerðar í kjölfar mats sem framkvæmt hefur verið á eftirspurn eftir nýjum þotum sem
hefur breyst mikið í kjölfar COVID-19 heimsfaraldursins en framleiðsla á Boeing 767 og Boeing 747-8 mun
haldast óbreytt. Í dag er framleidd ein júmbó-þota á tveggja mánaða fresti og þrjár Boeing 767 þotur á mánuði
sem eru fraktþotur eða eldsneytisþotur fyrir hernað.
Þetta er meðal þess sem kom fram á hlutahafafundi er afkoma Boeing á fyrsta ársfjórðungi var kynnt en
David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, tók fram að til standi að halda áfram framleiðslu
á Boeing 737 MAX þotunum á þessu ári og verði framleiðsluhraðinn á þeim aukinn upp í 31 þotu á mánuði
árið 2021.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.