flugfréttir

Fjórar flugvélategundir munu hverfa úr flota American

- Hætta með Embraer E190, Boeing 757-200, Boeing 767 og Airbus A330-300

5. maí 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:10

Flugvélategundirnar sem American Airlines ætlar að hætta með eru Embraer E190, Boeing 757-200, Boeing 767-300ER og Airbus A330-300

American Airlines hefur ákveðið að hætta með fjórar flugvélategundir vegna samdráttar í eftirspurn eftir flugi vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Þær flugvélar sem American Airlines ætlar að hætta með eru af gerðinni Embraer E190, Boeing 757-200, Boeing 767-300ER og Airbus A330-300.

„Með því að taka þessar vélar úr flotanum þá náum við að komast hjá háum viðhaldskostnaði, draga úr flækjustigi og einfalda flotastefnuna og náum fram meiri hagræðingu með því að fljúga færri flugvélategundum“, segir Derek Kerr, fjármálastjóri American Airlines.

American Airlines hefur tuttugu Embraer E190 þotur í flotanum sem eru orðnar um 12 ára gamlar og sautján Boeing 767-300ER þotur sem hafa náð meðalaldri upp á 20 ár en upphaflega stóð til að taka þessar tegundir úr flotanum fyrir lok þessa árs.

Boeing 757-200 þota American Airlines

Þá hefur félagið 34 þotur af gerðinni Boeing 757-200 sem eru um 20 ára gamlar og níu Airbus A330-300 breiðþotur sem félagið tók við eftir samrunann við US Airways en Boeing 757 þoturnar arfleiddi félagið við samrunann við America West Airlines.

Til viðbótar þá mun félagið einnig hætta með 19 þotur af gerðinni Canadair CRJ200ER sem hafa verið starfræktar af flugfélaginu PSA Airlines sem hafa flogið undir merkjum American Eagle.

Með þessu mun flugfloti American Airlines dragast saman um 100 þotur en mögulegt er að félagið stefni á að fækka enn frekar í flotanum á næstunni en verið er að ákveða hvað geri skuli við eldri Boeing 737 þoturnar í flotanum auk Airbus A320 vélanna sem félagið hefur.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga