flugfréttir
Qantas frestar öllum afhendingum á nýjum þotum
Boeing 787 þota í litum Qantas í verksmiðjum Boeing
Ástralska flugfélagið Qantas ætlar ekki að taka við neinum nýjum farþegaþotum í ár og hefur frestað afhendingum á bæði nýjum Boeing 787 þotum og Airbus A321XLR þotum.
Qantas átti að fá þrjár Boeing 787 þotur til viðbótar á þessu ári og sína fyrstu A321LR þotu frá Airbus en félagið
hefur frestað öllum afhendingum fram til ársins 2021.
Boeing 787 þoturnar þrjár stóð til að nota í áætlunarflugi frá Perth til Evrópu og A321LR þoturnar áttu að fara til dótturfélagsins
Jetstar og átti að nota þær í innanlandsflugi í Ástralíu.
Dreamliner-þoturnar þrjár eru einu nýju þoturnar sem Qantas á von á að fá í flotann og er engin
önnur útistandandi pöntun hjá félaginu í nýjar flugvélar en Jetstar á von á 18 Airbus A321LR þotum
auk A321XLR þotna sem til stóð að yrðu afhentar frá árinu 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.