flugfréttir
Korean Air stefnir á aukið millilandaflug á ný
Flugfloti Korean Air á Incheon-flugvellinum í Seoul
Korean Air hefur tilkynnt að félagið mun hægt og rólega hefja aftur millilandaflug frá og með 1. júní næstkomandi þar sem einhver lönd eru að byrja að opna aftur landamæri sín með afléttingu á ferðabanni.
Korean Air mun hefja flug til 19 áfangastaða um næstu mánaðarmót og mun félagið
þá byrja aftur að fljúga til Washington, Seattle, Vancouver, Toronto, Frankfurt, Singapore,
Peking og til Kuala Lumpur.
Flugfélagið stefnir á að fljúga til 32 áfangastaða af þeim 110 sem félagið hefur í leiðarkerfinu
sínu sem samsvarar um 146 flugferðum á viku.
Korean Air er ekki það eina sem hefur tilkynnt um aukið millilandaflug um næstu mánaðarmót
en flugfélög á borð við Qatar Airways, Lufthansa og Turkish Airlines stefna einnig á aukið
millilandaflug frá og með
1. júní.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.