flugfréttir
Stefna á að fljúga 75 prósent af leiðarkerfinu í ágúst
- Hefja flug að nýju 15. júní frá flestum flugvöllum í Bretlandi
EasyJet stefnir á að hefja flug að fullum krafti milli áfangastaða í Evrópu frá og með 15. júní næstkomandi
Breska lágfargjaldafélagið easyJet áætlar að félagið muni fljúga til helmings allra áfangastaða í leiðarkerfinu í júlí og er stefnt á að í ágúst muni félagið fljúga til 75% af öllum þeim 1.022 flugleiðum sem félagið flaug fyrir COVID-19 heimsfaraldurinn.
Í tilkynningu frá easyJet segir að félagið muni bjóða farþegum upp á að fljúga á ný frá öllum helstu
flugvöllum Bretlands og verður boðið aftur upp á borgarferðir til Evrópu auk þess sem flogið verður
til allra helstu sólaráfangastaðanna á Spáni, Ítalíu, Króatíu og Portúgal og jafnvel verður aftur
flogið til framandi áfangastaða á borð við staði í Egyptalandi og í Marokkó.
Félagið stefnir á að hefja áætlunarflug af fullum krafti frá Bretlandi þann 15. júní næstkomandi og verður
flogið frá Bristol, Liverpool, Birmingham, Newcastle, Edinborg, Glasgow, London Gatwick, Belfast og Inverness.
EasyJet mun framfylgja öllum helstu heilbrigðisreglum til þess að sporna við kórónuveirusmiti og verða
áhafnir með andlitsgrímur auk þess sem farþegarými um borð í hverri flugvél verða sótthreinsuð að loknu flugi
og þá verður enginn matur seldur um borð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.