flugfréttir

Fresta afhendingum á 68 MAX-þotum til 2025

4. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:25

Í stað þess að taka við fyrstu Boeing 737 MAX þotunni árið 2021 ætlar SMBC Aviation Capital að fresta því til ársins 2025

Írska flugvélaleigan SMBC Aviation Capital hefur ákveðið að fresta afhendingum á alls 68 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX um fjögur ár.

Fram kemur að flugvélaleigan ætli ekki að hætta við kaup á neinum MAX-þotum og standi til að taka við öllum þeim vélum sem pantaðar voru frá Boeing en í stað þess að taka við þeirri fyrstu á næsta ári þá ætlar fyrirtækið ekki að fá þær afhentar fyrr en árið 2025 í fyrsta lagi.

SMBC Aviation Capital hafði samið við Boeing um pöntun á 133 Boeing 737 MAX þotum og af þeim er búið að staðfesta kaup á 89 þotum.

Um 40% af öllum þeim Boeing 737 MAX þotum sem pantaðar hafa verið hafa verið pantaðar af flugvélaleigum sem síðan leigja vélarnar áfram til flugfélaga og flugrekstraraðila.

SMBC er ekki eina flugvélaleigan sem hefur frestað eða afpantað Boeing 737 MAX þoturnar en flugvélaleigan AerCap frestaði einnig afhendingum á 37 MAX-þotum í lok maí og þá ákvað flugvélaleigan Avolon að hætta við pöntun í 100 MAX-þotur í byrjun apríl.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga