flugfréttir

Lágmarksverð sett á fargjöld til og frá Austurríki

- Flugfélög mega ekki bjóða upp á lægra verð en 6.000 krónur á flugmiða

9. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:06

Flugfloti Austrian Airlines hefur verið kyrrsettur í tæpa tvo mánuði

Ríkisstjórnin í Austurríki hefur kynnt nýja reglugerð þar sem farið verður fram á lágmarksverð á fargjöldum fyrir þau flugfélög sem fljúga til og frá landinu en það er gert til þess að koma í veg fyrir að flugfélög fari að lækka fargjöld sín ef til verðstríðs kemur milli þeirra og evrópskra lágfargjaldafélaga.

Lágmarksverð á flugfari til og frá Austurríki verða 40 evrur sem nemur 6.000 krónum en þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé þar sem reglur eru settar um lágmarks flugmiðaverð.

Þá hafa austurrísk stjórnvöld einnig kynnt til sögunnar nýja skatta sem nemur 12 evrum sem bætist ofan á skatta upp á 30 evrur sem leggst ofan á hverja flugferð sem er styttri en 350 kílómetrar en það er gert til þess að hvetja fólk frekar til þess að ferðast með lestum.

Austrian Airlines tilkynnti þann 29. maí sl. að félagið myndi hefja farþegaflug að nýju eftir COVID-19 heimsfaraldurinn og mun félagið byrja á því að fljúga til áfangastaða í Evrópu og er gert ráð fyrir að flogið verði til 40 áfangastaða fyrir lok júní.

Austrian Airlines mun fá 150 milljónir evrur (22 milljarða króna) í opinbera aðstoð frá austurrísku ríkisstjórninni auk láns upp á 300 milljónir evra (45 milljarða króna).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga