flugfréttir

Panta 100 flugvélar frá COMAC

- China Express Airlines pantar bæði flugvélar af gerðinni ARJ21 og C919

12. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 12:44

Airbus A320 þota frá China Express Airlines

Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC hefur gert samkomulag við kínverskt flugfélag sem hyggst leggja inn pöntun í 100 þotur af gerðinni ARJ21 og C919.

Pöntunin er mikil byr undir vængi kínversku flugvélaverksmiðjunnar og þá sérstaklega á mjög krefjandi tímum þar sem flugfélög hafa frekar verið að hætta við pantanir heldur en að panta enn fleiri þotur.

Flugfélagið sem um ræðir er China Express Airlines en félagið hefur í dag 49 þotur í flotanum af gerðinni Airbus A320 og Bombardier CRJ900.

ARJ21 þotan kom á markaðinn árið 2016 og hafa nokkur eintök þegar verið afhent til kínverska flugfélagsins Chengdu Airlines en C919 þotan mun koma á markað á næsta ári en sú þota er í svipuðum flokki og Airbus A220 þotan sem Bombardier framleiddi upphaflega sem CSeries.

Fyrir lok maí hafði COMAC afhent 25 þotur af gerðinni ARJ21-700 af þeim 378 sem pantaðar hafa verið en þó er aðeins lítill hluti af þeim pöntunum sem hefur verið staðfestur.

Af C919 þotunni er það að frétta að allar sjö tilraunarþoturnar eru nú í flugprófunum og hefur framleiðandinn fengið pantanir í yfir 300 eintök.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga