flugfréttir

Fjölmennasta brautskráning atvinnuflugnema frá upphafi

- 78 atvinnuflugnemar útskrifuðust frá Keili - Flugskóla Íslands

14. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 08:34

Aldrei áður hafa eins margir útskrifast frá Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands líkt og sl. föstudag

Alls útskrifuðust 78 nemendur í atvinnuflugmannsnámi frá Flugakademíu Keilis og Flugskóla Íslands við hátíðlega athöfn sem fram fór í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ sl. föstudag, þann 12. júní.

Um er að ræða fjölmennustu brautskráningu atvinnuflugnema frá upphafi á Íslandi en samtals hafa 410 nemendur útskrifast sem atvinnuflugmenn frá Flugakademíu Keilis.

Björn Ingi Knútsson, forstöðumaður Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands stýrði útskrift og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Davíð Brá Unnarssyni, yfirkennara verklegrar deildar.   

Kayla Jo Baranowski fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur en hún hlaut meðaleinkunn upp á 9.5 og fékk að launum verðlaun frá Norlandair, Air Atlanta og Bluebird Nordic. Ræðu útskriftarnema í atvinnuflugnámi hélt Margrét Þórhildur Maríudóttir.

Kayla Jo Baranowski fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur

Keilir útskrifaði samtals 209 nemendur þennan dag og er þetta fjölmennasta brautskráning nemenda skólans frá upphafi eins og áður kom fram. Samtals hafa nú 3.858 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007.  

Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp auk þess sem Þorgrímur Þráinsson flutti hátíðarræðu. Vegna aðgangstakmarkanna var athöfnin send út í beinu streymi á samfélagsmiðlum Keilis.

Næstu bekkir í Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands hefjast í lok ágúst 2020. 

Fleiri myndir frá athöfninni:













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga