flugfréttir

Wizz Air sér fram á að ná fullum bata innan eins árs

14. júní 2020

|

Frétt skrifuð kl. 20:56

Airbus A321 þota Wizz Air

Wizz Air sér fram á að það eigi eftir að taka aðeins 12 mánuði fyrir félagið að ná sér að fullu eftir COVID-19 heimsfaraldurinn og sér félagið fram á að eftir þann tíma verði farþegafjöldinn orðinn sá sami og var fyrir faraldurinn.

Lágfargjaldafélagið ungverska hefur verið frekar bjartsýnt á framhaldið samanborið við önnur flugfélög og hafa áform um stofnun nýs lágfargjaldafélagsins í Abu Dhabi ekki breyst þrátt fyrir faraldurinn og stefnir félagið einnig á óbreytt umsvif í Evrópu á næstu mánuðum.

Jozsef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air, segir að þótt að önnur flugfélög eigi von á því að það muni taka þau 3 til 4 ár að rétta úr kútnum þá segir Varadi að hann telji að Wizz Air verði komið með sama farþegafjölda innan eins árs.

Wizz Air telur að markaðurinn í Evrópu verði sá sem mun ná sér fyrst á strik en önnur ástæða þess hversu bjartsýnt félagið er kann einnig að vera sterk fjárhagsstaða félagsins sem hefur náð miklum árangri í lágfargjaldaflugi innan Evrópu á sl. árum.

Þrátt fyrri þetta þá telja Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) að farþegaflug eigi ekki eftir að verða með eðlilegum hætti aftur fyrr en í fyrsta lagi árið 2023 og ári síðar, árið 2024, má vænta þess að sjá aukinn umsvif og fjölgun farþega sem var sú fjölgun sem búist var við á þessu ári.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga